Archive for March, 2009



Að borða sítrónu, originally uploaded by Ívar Örn.

Nú styttist óðum í the big 1. Svakalega mikið að gerast þessa dagana. Eiður fékk fyrsta alvöru hitann
og er loksins búinn að rífa sig upp úr því en tókst að smita mömmu og pabba í leiðinni.

Fyrstu skrefin komu í þessum mánuði ásamt því að ganga meðfram skápum, sófum og veggjum.
Helsta vandamálið við það í fyrstu var að koma sér aftur niður á gólfið, en fyrsta útgáfan gekk út á að sleppa takinu og láta sig húrra í gólfið án þess að beygja sig og oftast fylgdi sár og hár grátur í kjölfarið. Núna er hann búinn að læra “the hard way” að það er betra að beygja sig aðeins og detta á bossann.

Stuttu eftir að hann fór að standa upp áttaði hann sig á því að það er líka hægt að gera það í rúminu.
Vandamálið þar var að hann vildi ekki láta sig detta eins og hann gerði á gólfinu og var því bara staðið
þangað til hann nennti því ekki lengur og þá var bara kallað á pabba eða mömmu( byrjað að grenja sem sagt ).

Í dag er hann farinn að standa upp, labba meðfram nánast öllu og frá og með gærdeginum opna alla skápa. Það er eins og hann hafa allt í einu fattað hvernig þetta er gert. Í gær fann hann út úr því hvernig hann getur opnað glerskápinn í stofunni og svo núna í kvöld fann hann út úr því að það er hægt að opna tækjaskápinn fyrir neðan sjónvarpið. Ég er semsagt í vondum málum ef ég finn ekki lausn á því hvernig ég get læst skápnum fyrir morgundaginn.

Lestraráhuginn ætlar engan enda að taka og er hann búinn að lesa fleiri bækur á fyrstu 11 mánuðum lífs síns
en pabbi hans hefur náð að lesa á 30 árum. Einnig er hann farinn að sýna slúðurblöðum móður sinnar talsverðan áhuga.

Já og klappið kom í þessum mánuði. Núna er flestum gestum vinkað bless og svo er klappað fyrir því að þau séu að fara.

Fjarstýringar eru ennþá æðri öllum leikföngum og á hann núna sjálfur tvær sem eru sennilegast óstarfhæfar sökum þess að þær eru fullar af slefi.

Tennurnar eru orðnar sjö talsins og grunar okkur hjónunum að það séu fleiri á leiðinni sökum óhæfilega mikils slefs.



Að lesa slúðurtímaritStandandi stolturStolturFyndinn pabbiPabbi að kilta og mamma að rannsaka tærnarYfir sig spenntur.Flottur í nýju skónum.

Comments No Comments »