Litla dýrið okkar orðið eins árs, 9,4kg og 76,5cm! Ég varla hef undan við að taka myndir og setja inn á tölvuna og á hverjum degi gerist eitthvað nýtt. Eiður er loksins farinn að skríða eins og öll hin börnin og búinn að gefast upp á hermannaskriðinu. Hann er líka farinn að labba meðfram öllum veggjum og standa í svona 5 sekúndur óstuddur. Fyrsta skrefið var síðan tekið um daginn þegar hann tók eitt skref og lét sig síðan detta í fangið á pabba sínum.
Eftir að hann varð mobile hefur hann verið að rannsaka umhverfið í kringum sig ítarlega. Skápar, hurðir, skúffur, ruslið, þvottahúsið, uppþvottavélin, klósettið og klósettburstinn er svona meðal þess sem er á tékklistanum hans þegar hann vaknar. Ég gafst því upp og greip á það ráð að setja barnalæsingar á mikilvægustu skápana um daginn. Svo þvoði hann sér um hendurnar um daginn upp úr klósettinu og var bara mjög ánægður með árangurinn.
Afmælisveislan var vel heppnuð. Klara stóð sig eins og hetja í eldhúsinu og bakaði eins og vindurinn. Lestakaka ( sem ég hjálpaði til við að skreyta ), brauðterta, blá marengs og bananaterta, rískökur og ísterta voru í boði svo eitthvað sé nefnt. Þegar Klara bakar.. þá BAKAR Klara.
Tennurnar voru orðnar átta talsins síðast þegar ég taldi og allt blautt af slefi.
Eiður talar mikið. MJÖG MIKIÐ. Ég bara skil nánast ekki neitt af því sem hann segir. Stundum finnst manni eins og hann sé að svara með já eða nei en svo á hann til að svara með langlokum sem meika ekkert sens. Ætli það lagist ekki bara með tímanum. Annaðhvort gerir hann sig skiljanlegan á Íslensku eða við verðum að læra tungumálið hans.
Eiður tekur líkamsræktina alvarlega. Upphífingar eru helsta áhugamálið og er hann mest í því að reyna að hífa sig upp á borðið þar sem tölvan er. Hann getur híft sig nægilega mikið upp á tærnar til að geta séð upp á borðið. En það er mikið í húfi fyrir hann að ná þessari einu upphífingu þar sem borðið er troðið af tölvu og tæknidóti sem hann má að öllu jöfnu aldrei leika sér með.
Ákveðinn er hann eins og mamma sín. Og ennþá bætist í grátinn og er núna grátið sárum grátri þegar eitthvað er tekið af honum, þegar hann fær ekki matinn sinn á réttum tíma eða þegar hann vill ekki fara að sofa. Hann gerði það alveg áður fyrr, en núna er komið svona auka touch í gráturinn sem foreldrar hans eiga erfiðara með að horfa fram hjá.
Tags: 1 árs, 1 year, 12 mánaða, 12 months, Eiður, Eidur











Entries (RSS)