Archive for June 11th, 2009

Hvað má bjóða þér ?
Hvað má bjóða þér ?, originally uploaded by Ívar Örn.

Ég held að það sem standi mest upp úr í þessum mánuði er labbið hjá litla kútnum okkar. Núna er hann farinn að standa upp óstuddur, beygja sig niður til að taka hluti upp og hlaupa um.

Babblið heldur áfram eins og flest annað og er talað nánast út í eitt frá því hann vaknar. Mest þó þegar hann er nývaknaður eða þegar maður sækir hann á leiksskólann. Orðin sem eru algengust þessa dagana er kisa, datt, mammmammammmmm og dýrahljóðin eru jaaaaaa( mjá ), ííjaaaaa( þegar hann sér fugla ), aaafi, þetta og svo fékk ég hann til að segja muuu um daginn.

Drekka sjálfur ?
Að drekka sjálfur, originally uploaded by Ívar Örn.

Eiður er aðeins byrjaður að prófa sig áfram með að drekka sjálfur úr glasi, en eins og er virðist vera mest spennandi að hella öllu yfir sig og á gólfið. Gengur samt best ef pabbi eða mamma hjálpa til.

Tæki, tæki og aftur tæki. Sonur minn sér fátt annað. Uppáhalds leikfangið hjá afa og ömmu í Birkigrund er til dæmis lítill piparkökulall, nema að hann væri varla spenndandi nema það væri takki á honum sem fær hann til að segja eitthvað hljóð. Mest spennandi leikfangið hér heima er síðan BOSCH led vasaljós sem fylgdi með borvélinni minni.

Um daginn fórum við fjölskyldan í Nautólfsvíkina og var meðal annars farið í rennibraut sem var þarna og leikið í lítilli búð sem var á ströndinni.

Það er mjög hentugt að eiga barn eins og Eið á krepputímum. Ég fór til dæmis með hann í bakaríið um daginn að versla í morgunmatinn. Eiður starði í augun á afgreiðslukonunni, brosti svo út að eyrum og heillaði hana gjörsamlega upp úr skónum. Endaði með því að hún sótti risa kleinu, setti í poka og gaf honum. Ég þurfti hins vegar að borga fyrir allt mitt.

Mest fyndið er samt þegar hann ákveður að það sé kominn tími á að snýta sér. Þá hleypur hann inn á klósett, rífur svona 4 metra af klósettrúllu og snýtir sér duglega í pappírshrúguna.

Eiður snýtir sér from Ívar Örn Helgason on Vimeo.

Skríða og sletta mjólk út um alltRjómi... mmmmUppáhalds þessa daganaÍ fyrsta skipti á trambolíni.Með mömmu á ströndinni í NautólfsvíkBáðir í fánapeysumÍ stíl
Tags: , , , ,

Comments 1 Comment »