Archive for July 11th, 2009

Drekka sand
Drekka sand, originally uploaded by Ívar Örn.

Nú fyrst byrjar fjörið. Test hringurinn stækkar ört. Fyrsta sem Eiður gerir núna þegar hann vaknar er að hlaupa inn í svefnherbergi, upp í rúm, rjúka til mömmu sinnar, taka af henni augnsængina og henda henni á gólfið. Svo tékkar hann næst á síma pabba síns og er hann nokkrum sinnum búinn að hringja í Önnu Rögnu frænku sína klukkan 06:30 og senda henni einu sinni SMS(sennilega af því að hún er fyrst í símaskránni). Því næst hleypur hann fram og athugar hvort við höfum nokkuð gleymt að loka hurðinni inn á klósett. Ef hún er opin, sækir hann sér 20 blöð af klósettpappír og snýtir sér. Svo kíkir hann í baðið hvort það hafi eitthvað gerst þar síðan í gær. Næst er raceað inn í eldhús og reynt við kexskúffuna. Ef hann nær óstöðvaður að opna hana fær hann sér nokkur Ritz kex og mylur restina á gólfið. Svo er hveiti skúffan og hinar skúffurnar líka skemmtilegar. Síðan liggur leiðin inn í herbergi, svo fram á gang og fram í andyri. Svo er byrjað aftur á byrjunarreit.

Ég fór loksins og keypti hlið til að skerma af stofuna þar sem það er bara of mikið af stöffi þar sem honum er ekki treystandi fyrir og því óvinnandi að vera með hann heima og ætla sér að gera eitthvað annað en að eltast við hann ef það er ekki lokað inn í stofuna.

Megnið af mánuðinum er Eiður búinn að vera í sumarbúðum hjá ömmu Rögnu og ömmu Hrefnu. Þar er betur hugsað um Eið en forseta Íslands
og þar má hann sko allt! ( eða næstum allt ).
Ég renndi við í Birkigrund um daginn þegar hann var í pössun um kvöldmatarleytið og kíki á liðið í eldhúsinu. Allir voru að borða kvöldmat, nema Eiður. Hann var að borða Ís!

Í fyrsta skipti á hestbaki
Í fyrsta skipti á hestbaki, originally uploaded by Ívar Örn.

Hjá ömmu Rögnu er mesta sportið að fara í kexskápinn. Þar er jú líka kex eins og heima hjá honum sem hægt er að borða, eða mylja á gólfið. Svo er líka mjög gaman að hella úr rúsínuboxinu beint upp í munninn. Svo fékk hann að fara á hestbak, klappa hestunum, gefa þeim bita af brauðinu sem hann var að borða og svo var líka reynt að pota í augað hestinum en hann var stoppaður í miðju verki.

Heima hjá ömmu og afa
Heima hjá ömmu og afa, originally uploaded by Ívar Örn.

Tröppur eru mjög spennandi, en drengurinn kann bara að fara upp. Þ.e. hann skríður upp tröppurnar, en að fara niður er hann ekki búinn að fatta og ef hann fengi að fara sjálfur í tröppur myndi hann húrra niður á andlitinu.

Þröskulda er hann loksins farinn að þekkja og átta sig á að hann þarf að hægja á sér og klofa yfir þá til að detta ekki á hausinn.

Eiður fékk rör í eyrun í þessum mánuði sem eru að hjálpa honum mikið á eyrnabólgutímum. Strax eftir aðgerðina smakkaði hann Kókómjólk í fyrsta skipti og voru 750ml þambaðir af miklum ákafa.
Drengurinn er orðinn atvinnumaður í tanntöku. Tennurnar eru orðnar 14 talsins og komu núna síðast 5 í einu!

Vinsælustu orðin í þessum mánuði eru Dídó ( diskó sem Hera Sif frænka hans kenndi honum ). Didaa er eitthvað sem hann segir mjög oft, en ég tengdi ekki fyrr en hann stóð inní herberginu hans Bjössa Afa fyrir neðan gítarana hans, benti upp og sagði Dídaaa! Hann er farinn að kalla Mamma og Pabbi ef hann þarf á okkur að halda, en Amma er eiginlega vinsælla. Daginn, daginn segir hann stundum. Símann minn leggur hann líka oft upp að eyranu og segir “hæ!” hátt og skýrt.

Takkasýkin heldur áfram og er bara aukast ef eitthvað er. Við hjónin varla getum verið í tölvu nálægt drengnum sem verður gjörsamlega friðlaus fyrir því að hjálpa okkur við að slá inn orðin. Fjarstýringar eru líka vinsælar fyrir utan þær sem hann má vera með, þær eru fyrir smábörn.

Eiður í sandkassaJá vissiru það ekki ?Blómin tekin í nefiðEiður smakkar laukGluggað í FréttablaðiðEldavélin stilltTekið til í skápnum
Tags: , , ,

Comments No Comments »