Archive for September, 2009

Akstursíþróttir

Akstursíþróttir, originally uploaded by Ívar Örn.

Áhugi á bókum í þeim skilningi að láta lesa fyrir sig kviknaði í þessum mánuðinum. Kalli lánaði mér bókina GreppiKló og GreppiBarnið sem ég las fyrir Eið aftur og aftur. Þetta er eiginlega fyrsta bókin sem hann nennir að sitja í gegnum án þess að vera bara myndabók. Sjónvarpið var líka uppgötvað í nýrri mynd fyrir stuttu. Við kynntum hann fyrir In the night garden þáttunum sem eru víst sýndir á RÚV á sunnudagsmorgnum. Svona fyrir þá sem þekkja ekki þessa þætti, þá eru þeir algjört heilalím með fígúrum sem síendurtaka sömu línuna aftur og aftur. Það er sjaldan þessa dagana sem maður sér barnið sitjandi kjurrt í 20 mínútur.

Í Frakklandi

Í Frakklandi með ömmu, originally uploaded by Ívar Örn.

Mamma var síðan svo elskuleg að bjóða okkur til Frakklands. Hún leigði gullfallegt hús í franska bænum Surin. Þar vorum við í góðu yfirlæti við sundlaugarbakkann, borðandi geggjaðan mat og hlaupandi á eftir prakkaranum. Í Frakklandi breyttist litli drengurinn okkar soldið mikið. Hann hljóp helmingi hraðar en venjulega, öskraði helmingi hærra, var helmingi ákveðnari og vildi eiginlega bara sofa í sundlauginni. En hann róaðist svo fljótlega þegar við komum aftur heim.

Að sigla með ömmuÍ ParísLeiðsögumaðurinn

2 nýjar tennur litu svo dagsins ljós stuttu eftir að við komum aftur heim. Og þá eru bara 2 stykki eftir í að hann verði fulltenntur. Já og nei er ennþá eitthvað að vefjast fyrir honum og þarf maður eiginlega bara að giska hvort það er sem hann er að falast eftir í hvort skiptið.

Eiður beitti neyðarlögunum í þessum mánuði tók yfir koddann minn. Ekki nóg með það að hann bókstaflega sofi ofan á andlitinu á mér þegar hann er upp í hjá okkur, heldur harðneitar barnið að fara að sofa í sínu rúmi án þess að fá koddann minn með sér. Á morgnanna er koddinn síðan tekinn með framm og lagður niður hér og þar til að kúra aðeins á gólfinu.

Fyrsta ráðstefnan var tækluð í þessum mánuðinum og mætti hann eldhress á EVE fanfest í laugardagshöll.

Ha? Borða súkkulaði?

Ha? Borða súkkulaði?, originally uploaded by Ívar Örn.

Kvöldið fyrir 1 1/2 árs fékk Eiður að dunda sér aðeins inní stofu. Ég skellti á einum þætti sem hann sat þögull sem gröfin yfir allann tímann. Ég var nýbúinn að nefna þetta við Klöru hvað hann væri óvenjulega góður og stilltur þegar mér er litið inn í stofu á hann. Mér sýndist hann vera að borða eitthvað, en ég mundi ekki eftir að hafa látið hann hafa neitt. Þegar betur var að gáð hafði stubburinn fundið risa stórt Toblerone súkkulaði og sat þarna í rólegheitum að jappla á því yfir barnatímanum. Þetta er semsagt í fyrsta skipti sem hann fær alvöru súkkulaði að borða.

Eiður á EVE fanfestMagnar knúsaður í draslSetið á IceSave samningnumEiður hjá pabba

Comments No Comments »