Author Archive



Útí glugga, originally uploaded by Ívar Örn

Eiður orðinn 10 mánaða gamall og styttist óðum í að hann byrji í aðlögun í leikskólanum. Hér í laufbrekkunni gengur allt út á að skerma af og forða því dóti sem okkur er annt um því ef ekki er vel að gáð kemur litli Boot CAmparinn okkar skríðandi Army Style og tætir allt í sig. Að standa úti í glugga er líka mjög gaman þósvo að hann sé hvorki fær um að koma sér sjálfur í eða úr þeirri stöðu sjálfur. Tennurnar eru óspart notaðar á tær móður hans þegar hann vantar eitthvað og einnig eru snúrur nagarðar óspart ef hann kemst í slíkar.

Eiður er orðinn 74cm og 8.7kg og dafnar vel. Alltaf bætist í orðaforðann og nýjustu orðin eru Strætó, Skamm, Dudda, Krakkar og Heitt. Eiður er líka búinn að læra að klappa þósvo að það sé gert mjög varlega til hitta höndunum nú örugglega saman og klapp er ekki svona eitthvað hann gerir fyrir hvern sem er og hvenær sem er … en hann kann það samt.

Við feðgarnir erum ennþá í buslinu en 3ja námskeiðið er bara einu sinni í viku. Aðaláhugamálið þessa dagana eru bækur og rútínan á skiptiborðinu er sú að fyrst er hann lagður niður, næst fær hann bók og þá fyrst er hægt að byrja að skipta um bleijuna.

Svefnrútínan er reyndar öll í klessu akkurat núna því Eiður er nýskriðinn upp úr flensunni en áætlaður fjöldi daga til að koma reglu aftur á í þeim geiranum eru 2 dagar af orgi og öskri.

HermannaskriðStrákurinn í speglinum

Frekja #1Frekja #2Frekja #3

Læt flakka með hérna video af drengnum okkar að lesa. Lykiloðið til að aflæsa skránni er nafnið á bróður mínum.

Eiður Styrr að lesa from Ívar Örn Helgason on Vimeo.

Tags: ,

Comments 1 Comment »



Riiisa stór, originally uploaded by Ívar Örn.

Drengurinn okkar orðinn 9 mánaða og tíminn flýgur áfram. Tennurnar á litla kút halda áfram að brjótast niður og glittír í tanngarðinn í hvert skipti sem hann brosir. Hljóð eins og gaga, þetta, ttta, mammmamama, pabababba og þþþþtthhhhhh eru vinsælust þessa dagana og svo er hann farinn að sýna okkur hvað hann er orðinn stór. Og þá eiga allir að klappa þar sem hann er ekki búinn að læra það sjálfur. Annars gengur rútínan bara gríðarlega vel og kúturinn sefur eins og steinn á nóttunni. Já og það er gaman að segja frá því að hann er kominn með pláss á leikskóla og byrjar í aðlögun 6.apríl.

Brosandi út að eyrumEiðurEiður og pabbi hans

Comments 1 Comment »


Jólin voru alveg einstaklega yndisleg í ár. En núna er þetta bara spurning um nokkra daga þangað til að við verðum í stanslausum eltingarleik. Eiður er farinn að standa við lágar mublur í íbúðinni og svo er hann farinn að geta reddað sér frekar vel á gólfinu eins og meðfylgjandi “TimeLapse” myndskeið sýnir. Svo verður gaman að sjá litla drenginn á gamlárskvöld, hvernig hann höndlar blysin og stjörnuljósin.

iPhone ... mmmmmmFrekar hress að borða mandarínu

Comments 1 Comment »



Eiður í nýju peysunni sinni, originally uploaded by Ívar Örn.

8 mánuðir komnir og styttist óðum í eins árs afmælið. Eiður er farinn að framleiða tennur. 4 stykki komin og ein sjáanlega á leiðinni. Sundið gengur vel og ef þetta heldur svona áfram geri ég ráð fyrir því að hann verði farinn að synda 100 metra skriðsund á innan við 4 mínútum eftir nokkra mánuði. Eiður er ekkert að flýta sér að byrja að skríða þannig að tækin mín og myndavélarnar eru ennþá í öruggu skjóli, en drengurinn sýnir tölvum og fjarstýringum meiri og meiri áhuga eftir því sem dagarnir líða. Það er alltaf að bætast við rútínuna sem var nú ekkert svakalega flókin áður en hann fór í háttinn ( D - Vítamín ) en núna erum við farnir að bursta tennurnar sem honum finnst einstaklega skemmtilegt ( kanski þar sem fyrir honum er þetta bara vera meira gómnudd en tannburstun ).

Eiður gisti í fyrsta skipti hjá Ömmu Rögnu og Bjössa afa í gær og það var greinilegt að hann fékk fyrsta flokks þjónustu þar á bæ þar sem hann sýndi foreldrum sínum ekkert svo mikinn áhuga þegar við komum að sækja hann daginn eftir.

Eiður klár fyrir bíltúrEiður standandi hjá pabbaEiður og mammaEiður týndur

Tags:

Comments No Comments »



Eiður 7 mánaða, originally uploaded by Ívar Örn.

Vá… núna er ég farinn að átta mig á þessu bulli í foreldrum mínum talandi um hvað tíminn líður hratt. Fyrsta tönnin er komin Fyrstu 2 tennurnar eru komnar og mjög stutt í 2 aðrar. Eiður virðist hafa erft tækjafíknina frá föður sínum og er hann einna helst heitur fyrir iPhone símanum mínum. Einnig er hann farinn að verða ákveðnari hvað það varðar að ef hann langar í eitthvað sem hann sér er allt gert til að koma sér nær hlutnum. Við ákváðum því að lækka rúmbotninn til að fyrirbyggja að hann skutli sér sjálfur út á gólf.

Annað skemmtilegt sem gerðist í mánuðinum var að mannanafnanefnd virðist hafa séð af sér og tekið nafnið aftur fyrir og samþykkt í þetta skiptið! Helvíti fínt það … þannig að núna heitir hann Eiður Styrr ( með 2 errum ) í þjóðskrá.



Fyrsta tönnin kominEiður að svæfa pabbaAð mæla

Comments 2 Comments »



Snákurinn drepinn og étinn, originally uploaded by Ívar Örn.

Hálft ár er nú liðið síðan Eiður fæddist. Eiður er farinn að éta nánast allt á matseðlinum og gulrætur eru ekki lengur framleiddar af sjálfum Satan. Við vorum að hækka okkur upp í 3 1/2 í bleyjustærð og megnið af samfellunum og náttgöllunum eru komin upp á loft. Við Eiður erum ennþá í köfunartímunum og skemmtum okkur konunglega þar. Fyrir nokkru skelltum við okkur út með drenginn á snjóþotu, en sökum þess að hann hefur aldrei gert slíkt áður þá var hann bara með template “hissa” svipinn uppi allan tímann, en hey.. hann er líka þannig þegar hann fær að fara með í Bónus. Læt fylgja með nokkrar myndir.

Flett í gegnum bók
Á snjóþotuKeyrand strætó

Comments 1 Comment »



Eiður að lesa, originally uploaded by Ívar ÖrnKúrturinn orðinn 5 mánaða.

Eiður er byrjaður á framhaldsnámskeiði í ungbarnasundi og ganga tímarnir einna helst út á að kafa og busla. Annað gríðarlega spennandi sem byrjaði í þessum mánuði er maturinn…Ójá.. avocado, sætar kartöflur og bananar eru í uppáhaldi, en gulrætur, rófur og blómkál er svona það ógeðslegasta sem hann hefur smakkað. Við erum líka búin að kaupa svona klósettsetu addon og er hann búinn að prófa að sk**a beint í klósettið. Skemmtilegir tímar framundan.

Pabbi með suðið mittÞað er gott að kúra hjá ömmu

Comments 1 Comment »

Hellúúú

4ra mánaða, originally uploaded by Ívar Örn.

Betra seint en aldrei….Síðasti séns að pósta 4ra mánaða myndinni. Eiður er núna byrjaður í ungbarnasundi 2svar í viku og kafaði einmitt í fyrsta skipti í síðustu viku. Svo förum við feðgarnir einu sinni í viku í ungbarnanudd þar sem hann tekur hressilega á öxlunum á pabba sínum :) Þegar heim er komið er stanslaust babbl, slef og blaður. Gaman gaman gaman :) Fleiri myndir líka komnar inn á myndavefinn.

Comments No Comments »



4ra vikna, originally uploaded by Ívar Örn.

Jæja… núna er Eiður orðinn 3ra mánaða. Hann er orðinn 62cm og tæp 6 kíló. Eiður notar hvert tækifæri sem gefst til að reka við, slefa yfir allt og éta smekkinn sinn. Við hjónin erum að springa úr stolti og hvað þá þegar hann rekur upp úr sér bull orðin grrrrgubbbb og gugugugugu. Fyrsta orðið hans var NEI og svo vill Klara meina að hann sé farinn að segja Mamma… en ég held að það sé tóm vitleysa í henni. Ég var að henda inn nokkrum myndum á myndasvæðið hans fyrir þá sem hafa verið að kvarta..

Comments 1 Comment »



4ra vikna, originally uploaded by Ívar Örn.

Eiður bara orðinn 2ja mánaða ( og 5 daga ) gamall! Ég fór með hann í 9 vikna skoðun í síðustu viku. Eiður brosti bara og spjallaði við ljósuna allan tímann. Annars er mikið að gerast hjá litla kútnum þessa dagana. Bros, hjal og hlátur sem bræða mann í hvert skiptið á fætur öðru. Á sunnudaginn fór hann í fyrsta skipti með okkur í sveitina til Kjartans afa og Hrefnu ömmu og svo fórum við helgina þar á undan með hann í sveitina til Helga afa og Kristínar fræknu. Hann hefur ekki stoppað í því að segja okkur frá öllu sem hann sá í sveitinni :)

Comments 4 Comments »