Archive for the “Family Posts” Category


IMG_4219

Jólamyndatakan, originally uploaded by Ívar Örn.

Þess mánuður er mánuðurinn sem Eiður áttaði sig á því að það eru til betri til að fá það sem maður vill en að segja aaaaaaaaaa og benda. Núna koma ný orð daglega og svo er hann að byrja að mynda setningar. Svo upplifum við að við getum sagt hvað sem er við hann og að hann skilji nákvæmlega hvað maður er að tala um. Svo er þetta eitthvað svo miklu þægilegra þar sem hann er farinn að gera sig meira skiljanlegan. Til dæmis fór ég inn til hans eina nóttina þegar hann vaknaði grátandi og ég spurði hann hvað væri að og hann svaraði úúúbbaaa (súpa, drekka).

Borða sjálfur

Allt getur verið húfa, originally uploaded by Ívar Örn.

Það er líka eins og hann sé búinn að átta sig á að hann er orðinn rosalega stór. Núna heimtar hann að borða sjálfur í öll mál með skeið eða gaffli. Það eru bara smábörn sem láta mata sig. Hann kann líka að bursta sínar eigin tennur, og svo þegar hann er búinn af því burstar hann tennurnar á foreldrum sínum. Shrek tannkremstúpan er í miklu uppáhaldi sérstaklega þar sem hún er líka sími.

Skælbrosandi

Skælbrosandi, originally uploaded by Ívar Örn.

Rétt í síðasta mánuði var okkur fyrst farið að líða eins og við gætum litið af honum. Nei.. það varði ekki lengi. Núna er hann farinn að príla upp á allt sem hann finnur, stólar, klósettið, kassar og fleira. Það verður auðvitað að prófa að príla upp á þetta allt og fara svo aftur niður, endurtekið 100 sinnum.

Orðalistinn: Meija (meira), Neii, Já, Pabbi, Mamma, Amma, Afi, Datt, Kisja, Búihh (búið), Goggodíí(krókodíll), Api, Hæ, Bæ, daaa (takk), upp, nijuhh (niður), úúúga ( loka, hljómar samt meira eins og kúka ), ýýta, Ég vil sjá, Opna, Loka, Úba meira.

BorínefniðBaltasar 2ja áraPrakkarastrikin falin með brosiIMG_4732Borða sjálfurÁ leikskólanumFeðgarIMG_4232Afslöppun hjá mömmu

Comments No Comments »

Alltaf brosandi

Alltaf brosandi, originally uploaded by Ívar Örn.

Stubburinn stækkar og stækkar. En núna finnst mér eins og að þroskinn sé að taka kipp. Ný orð eru farin að myndast og einbeitingin er orðin meiri. Manni finnst maður ekki þurfa að vera nonstop á eftir honum að passa upp á að hann fari sér ekki að voða. Svona eins og það sé að færast yfir hann einhver smá ró.

Master of remotes

Master of remotes, originally uploaded by Ívar Örn.

Sjónvarpið er svona við það að taka við af kexskúffunni ( þar sem hún er ekki lengur aðgengileg börnum undir 5 ára) á morgnana og er rútínan meira þannig að það er tekið á rás að hliðinu inn í stofu og það hrist duglega og svo er vælt smá til að setja áherslu á að það sé læst og það þurfi að opna. Fjarstýringar og skáparnir eru ekki alveg jafn spennandi, en hann virðist hafa þann einstaka hæfileika að nota allt sem síma.

Að spila á gítar

Að spila á gítar, originally uploaded by Ívar Örn.

Það sem er yndislegt við þetta tímabil er að hann er farinn að sækja meira til okkar í knús. Ef hann dettur eða er einhverra hluta sár, þá kemur hann til okkar og gefur okkur risa knús, sem er alveg hrikalega gefandi.

Extensions

Extensions, originally uploaded by Ívar Örn.

Eiður setti gubbumet í þessum mánuði. Ég man ekki eftir að við höfum þurft að þvo svona mikið áður og að setja í þvottavél klukkan 03:30 að morgni er alveg nýtt fyrir mér.

Orðalistinn: Meija (meira), Neiiij, Jáhh, Pabbi, Mamma, Amma, Afi, Datt, Gisja (kisa), Oneii misnedda, Datt, Bauud, Datt á gólfið, Dudda

Að horfa á fréttir með pabba

Að horfa á fréttir með pabba, originally uploaded by Ívar Örn.

Með nýju lestarbókinaPrílandi stubburFeðgarHjá mömmuFiskað eftir kexiFalleg fjölskylda

Comments No Comments »

Akstursíþróttir

Akstursíþróttir, originally uploaded by Ívar Örn.

Áhugi á bókum í þeim skilningi að láta lesa fyrir sig kviknaði í þessum mánuðinum. Kalli lánaði mér bókina GreppiKló og GreppiBarnið sem ég las fyrir Eið aftur og aftur. Þetta er eiginlega fyrsta bókin sem hann nennir að sitja í gegnum án þess að vera bara myndabók. Sjónvarpið var líka uppgötvað í nýrri mynd fyrir stuttu. Við kynntum hann fyrir In the night garden þáttunum sem eru víst sýndir á RÚV á sunnudagsmorgnum. Svona fyrir þá sem þekkja ekki þessa þætti, þá eru þeir algjört heilalím með fígúrum sem síendurtaka sömu línuna aftur og aftur. Það er sjaldan þessa dagana sem maður sér barnið sitjandi kjurrt í 20 mínútur.

Í Frakklandi

Í Frakklandi með ömmu, originally uploaded by Ívar Örn.

Mamma var síðan svo elskuleg að bjóða okkur til Frakklands. Hún leigði gullfallegt hús í franska bænum Surin. Þar vorum við í góðu yfirlæti við sundlaugarbakkann, borðandi geggjaðan mat og hlaupandi á eftir prakkaranum. Í Frakklandi breyttist litli drengurinn okkar soldið mikið. Hann hljóp helmingi hraðar en venjulega, öskraði helmingi hærra, var helmingi ákveðnari og vildi eiginlega bara sofa í sundlauginni. En hann róaðist svo fljótlega þegar við komum aftur heim.

Að sigla með ömmuÍ ParísLeiðsögumaðurinn

2 nýjar tennur litu svo dagsins ljós stuttu eftir að við komum aftur heim. Og þá eru bara 2 stykki eftir í að hann verði fulltenntur. Já og nei er ennþá eitthvað að vefjast fyrir honum og þarf maður eiginlega bara að giska hvort það er sem hann er að falast eftir í hvort skiptið.

Eiður beitti neyðarlögunum í þessum mánuði tók yfir koddann minn. Ekki nóg með það að hann bókstaflega sofi ofan á andlitinu á mér þegar hann er upp í hjá okkur, heldur harðneitar barnið að fara að sofa í sínu rúmi án þess að fá koddann minn með sér. Á morgnanna er koddinn síðan tekinn með framm og lagður niður hér og þar til að kúra aðeins á gólfinu.

Fyrsta ráðstefnan var tækluð í þessum mánuðinum og mætti hann eldhress á EVE fanfest í laugardagshöll.

Ha? Borða súkkulaði?

Ha? Borða súkkulaði?, originally uploaded by Ívar Örn.

Kvöldið fyrir 1 1/2 árs fékk Eiður að dunda sér aðeins inní stofu. Ég skellti á einum þætti sem hann sat þögull sem gröfin yfir allann tímann. Ég var nýbúinn að nefna þetta við Klöru hvað hann væri óvenjulega góður og stilltur þegar mér er litið inn í stofu á hann. Mér sýndist hann vera að borða eitthvað, en ég mundi ekki eftir að hafa látið hann hafa neitt. Þegar betur var að gáð hafði stubburinn fundið risa stórt Toblerone súkkulaði og sat þarna í rólegheitum að jappla á því yfir barnatímanum. Þetta er semsagt í fyrsta skipti sem hann fær alvöru súkkulaði að borða.

Eiður á EVE fanfestMagnar knúsaður í draslSetið á IceSave samningnumEiður hjá pabba

Comments No Comments »

Drekka sand
Drekka sand, originally uploaded by Ívar Örn.

Nú fyrst byrjar fjörið. Test hringurinn stækkar ört. Fyrsta sem Eiður gerir núna þegar hann vaknar er að hlaupa inn í svefnherbergi, upp í rúm, rjúka til mömmu sinnar, taka af henni augnsængina og henda henni á gólfið. Svo tékkar hann næst á síma pabba síns og er hann nokkrum sinnum búinn að hringja í Önnu Rögnu frænku sína klukkan 06:30 og senda henni einu sinni SMS(sennilega af því að hún er fyrst í símaskránni). Því næst hleypur hann fram og athugar hvort við höfum nokkuð gleymt að loka hurðinni inn á klósett. Ef hún er opin, sækir hann sér 20 blöð af klósettpappír og snýtir sér. Svo kíkir hann í baðið hvort það hafi eitthvað gerst þar síðan í gær. Næst er raceað inn í eldhús og reynt við kexskúffuna. Ef hann nær óstöðvaður að opna hana fær hann sér nokkur Ritz kex og mylur restina á gólfið. Svo er hveiti skúffan og hinar skúffurnar líka skemmtilegar. Síðan liggur leiðin inn í herbergi, svo fram á gang og fram í andyri. Svo er byrjað aftur á byrjunarreit.

Ég fór loksins og keypti hlið til að skerma af stofuna þar sem það er bara of mikið af stöffi þar sem honum er ekki treystandi fyrir og því óvinnandi að vera með hann heima og ætla sér að gera eitthvað annað en að eltast við hann ef það er ekki lokað inn í stofuna.

Megnið af mánuðinum er Eiður búinn að vera í sumarbúðum hjá ömmu Rögnu og ömmu Hrefnu. Þar er betur hugsað um Eið en forseta Íslands
og þar má hann sko allt! ( eða næstum allt ).
Ég renndi við í Birkigrund um daginn þegar hann var í pössun um kvöldmatarleytið og kíki á liðið í eldhúsinu. Allir voru að borða kvöldmat, nema Eiður. Hann var að borða Ís!

Í fyrsta skipti á hestbaki
Í fyrsta skipti á hestbaki, originally uploaded by Ívar Örn.

Hjá ömmu Rögnu er mesta sportið að fara í kexskápinn. Þar er jú líka kex eins og heima hjá honum sem hægt er að borða, eða mylja á gólfið. Svo er líka mjög gaman að hella úr rúsínuboxinu beint upp í munninn. Svo fékk hann að fara á hestbak, klappa hestunum, gefa þeim bita af brauðinu sem hann var að borða og svo var líka reynt að pota í augað hestinum en hann var stoppaður í miðju verki.

Heima hjá ömmu og afa
Heima hjá ömmu og afa, originally uploaded by Ívar Örn.

Tröppur eru mjög spennandi, en drengurinn kann bara að fara upp. Þ.e. hann skríður upp tröppurnar, en að fara niður er hann ekki búinn að fatta og ef hann fengi að fara sjálfur í tröppur myndi hann húrra niður á andlitinu.

Þröskulda er hann loksins farinn að þekkja og átta sig á að hann þarf að hægja á sér og klofa yfir þá til að detta ekki á hausinn.

Eiður fékk rör í eyrun í þessum mánuði sem eru að hjálpa honum mikið á eyrnabólgutímum. Strax eftir aðgerðina smakkaði hann Kókómjólk í fyrsta skipti og voru 750ml þambaðir af miklum ákafa.
Drengurinn er orðinn atvinnumaður í tanntöku. Tennurnar eru orðnar 14 talsins og komu núna síðast 5 í einu!

Vinsælustu orðin í þessum mánuði eru Dídó ( diskó sem Hera Sif frænka hans kenndi honum ). Didaa er eitthvað sem hann segir mjög oft, en ég tengdi ekki fyrr en hann stóð inní herberginu hans Bjössa Afa fyrir neðan gítarana hans, benti upp og sagði Dídaaa! Hann er farinn að kalla Mamma og Pabbi ef hann þarf á okkur að halda, en Amma er eiginlega vinsælla. Daginn, daginn segir hann stundum. Símann minn leggur hann líka oft upp að eyranu og segir “hæ!” hátt og skýrt.

Takkasýkin heldur áfram og er bara aukast ef eitthvað er. Við hjónin varla getum verið í tölvu nálægt drengnum sem verður gjörsamlega friðlaus fyrir því að hjálpa okkur við að slá inn orðin. Fjarstýringar eru líka vinsælar fyrir utan þær sem hann má vera með, þær eru fyrir smábörn.

Eiður í sandkassaJá vissiru það ekki ?Blómin tekin í nefiðEiður smakkar laukGluggað í FréttablaðiðEldavélin stilltTekið til í skápnum
Tags: , , ,

Comments No Comments »


Fyrsti dagurinn á leikskólanum, originally uploaded by Ívar Örn.

Stór mánuður að baki. Eiður er núna byrjaður á leikskóla. Aðlögunin gekk svona líka vel. Það var búið að undirbúa okkur undir að hann yrði örugglega ekkert mjög sáttur við að verða skilinn eftir, en þegar að því kom var honum bara alveg sama. Allar fósturnar eru skemmtilegar og hann vill vera hjá þeim öllum. Fyrsta daginn í aðlögun skellti hann sér meiraðsegja í vettvangskönnun um leikskólann, kíkti á pottana í eldhúsinu og fór svo inn í eitt leikherbergið þar sem hann lék sér við nokkra krakka. Pestirnar koma núna í röðum og er Eiður búinn að taka út hita, kvef, eyrnabólgu, barkabólgu, missa röddina svo eitthvað sé nefnt og aðeins 2 vikur að baki á leikskólanum.

Göngutúrarnir verða alltaf lengri og lengri og er hann farinn að labba óstuddur á milli sófa og svo til okkar annað slagið ásamt því að geta núna staðið upp og sest niður með miklu meira öryggi en áður. Einnig er hann farinn að príla upp á sófana, sófaskemlana og upp í rúmið okkar sem kallaði á breytingar í því hvar hlutir eru geymdir.

Climping Mnt Sofa, originally uploaded by Ívar Örn.

Prakkaraskapurinn virðist aukast núna með hverjum deginum. Mest skemmtilegt er að dreifa dótinu út um allt og taka borðstofustólana og skella þeim í gólfið með tilheyrandi látum og athygli frá foreldrunum. Við varla höfum undan við að taka til eftir skrípið.

Smá saman bætist við orðaforðann en helsta breytingin þar á er að hann virðist vera farinn að svara með já og nei ef maður spyr hann út í einfalda hluti eins og “viltu rúsínu?”. Sú spurning skilar í 95% tilfella “jaaaaa”, en í 5% tilfellum hristir hann hausinn og segir “neeeei” þósvo að hann vilji auðvitað rúsínuna.

Eiður og Rannveig frænkaGera  það sem ekki máEf þú brosir framan í heiminn..IMG_1301Á leikskólanumDrekkutímiFeðgar

Tags: , , ,

Comments No Comments »



Fyrsti pakkinn, originally uploaded by Ívar Örn.

Litla dýrið okkar orðið eins árs, 9,4kg og 76,5cm! Ég varla hef undan við að taka myndir og setja inn á tölvuna og á hverjum degi gerist eitthvað nýtt. Eiður er loksins farinn að skríða eins og öll hin börnin og búinn að gefast upp á hermannaskriðinu. Hann er líka farinn að labba meðfram öllum veggjum og standa í svona 5 sekúndur óstuddur. Fyrsta skrefið var síðan tekið um daginn þegar hann tók eitt skref og lét sig síðan detta í fangið á pabba sínum.

Eftir að hann varð mobile hefur hann verið að rannsaka umhverfið í kringum sig ítarlega. Skápar, hurðir, skúffur, ruslið, þvottahúsið, uppþvottavélin, klósettið og klósettburstinn er svona meðal þess sem er á tékklistanum hans þegar hann vaknar. Ég gafst því upp og greip á það ráð að setja barnalæsingar á mikilvægustu skápana um daginn. Svo þvoði hann sér um hendurnar um daginn upp úr klósettinu og var bara mjög ánægður með árangurinn.



Eiður og Heiðar, originally uploaded by Ívar Örn.

Afmælisveislan var vel heppnuð. Klara stóð sig eins og hetja í eldhúsinu og bakaði eins og vindurinn. Lestakaka ( sem ég hjálpaði til við að skreyta ), brauðterta, blá marengs og bananaterta, rískökur og ísterta voru í boði svo eitthvað sé nefnt. Þegar Klara bakar.. þá BAKAR Klara.

Tennurnar voru orðnar átta talsins síðast þegar ég taldi og allt blautt af slefi.

Eiður talar mikið. MJÖG MIKIÐ. Ég bara skil nánast ekki neitt af því sem hann segir. Stundum finnst manni eins og hann sé að svara með já eða nei en svo á hann til að svara með langlokum sem meika ekkert sens. Ætli það lagist ekki bara með tímanum. Annaðhvort gerir hann sig skiljanlegan á Íslensku eða við verðum að læra tungumálið hans.

Eiður tekur líkamsræktina alvarlega. Upphífingar eru helsta áhugamálið og er hann mest í því að reyna að hífa sig upp á borðið þar sem tölvan er. Hann getur híft sig nægilega mikið upp á tærnar til að geta séð upp á borðið. En það er mikið í húfi fyrir hann að ná þessari einu upphífingu þar sem borðið er troðið af tölvu og tæknidóti sem hann má að öllu jöfnu aldrei leika sér með.



Egill og Eiður, originally uploaded by Ívar Örn.

Ákveðinn er hann eins og mamma sín. Og ennþá bætist í grátinn og er núna grátið sárum grátri þegar eitthvað er tekið af honum, þegar hann fær ekki matinn sinn á réttum tíma eða þegar hann vill ekki fara að sofa. Hann gerði það alveg áður fyrr, en núna er komið svona auka touch í gráturinn sem foreldrar hans eiga erfiðara með að horfa fram hjá.

Self serviceBlásið á kerfiðLestin og sjóræningjakökurnarMömmustrákurinnAllir klappaPullupsHjá ömmu og afa í B1

Tags: , , , , ,

Comments 2 Comments »

Þetta er það sem gerist ef hurðin inná bað er skilin eftir opin í svo mikið sem 10 sekúndur. Gerandinn var á bak og burt þegar ég kom að þessu.

Comments No Comments »



Að borða sítrónu, originally uploaded by Ívar Örn.

Nú styttist óðum í the big 1. Svakalega mikið að gerast þessa dagana. Eiður fékk fyrsta alvöru hitann
og er loksins búinn að rífa sig upp úr því en tókst að smita mömmu og pabba í leiðinni.

Fyrstu skrefin komu í þessum mánuði ásamt því að ganga meðfram skápum, sófum og veggjum.
Helsta vandamálið við það í fyrstu var að koma sér aftur niður á gólfið, en fyrsta útgáfan gekk út á að sleppa takinu og láta sig húrra í gólfið án þess að beygja sig og oftast fylgdi sár og hár grátur í kjölfarið. Núna er hann búinn að læra “the hard way” að það er betra að beygja sig aðeins og detta á bossann.

Stuttu eftir að hann fór að standa upp áttaði hann sig á því að það er líka hægt að gera það í rúminu.
Vandamálið þar var að hann vildi ekki láta sig detta eins og hann gerði á gólfinu og var því bara staðið
þangað til hann nennti því ekki lengur og þá var bara kallað á pabba eða mömmu( byrjað að grenja sem sagt ).

Í dag er hann farinn að standa upp, labba meðfram nánast öllu og frá og með gærdeginum opna alla skápa. Það er eins og hann hafa allt í einu fattað hvernig þetta er gert. Í gær fann hann út úr því hvernig hann getur opnað glerskápinn í stofunni og svo núna í kvöld fann hann út úr því að það er hægt að opna tækjaskápinn fyrir neðan sjónvarpið. Ég er semsagt í vondum málum ef ég finn ekki lausn á því hvernig ég get læst skápnum fyrir morgundaginn.

Lestraráhuginn ætlar engan enda að taka og er hann búinn að lesa fleiri bækur á fyrstu 11 mánuðum lífs síns
en pabbi hans hefur náð að lesa á 30 árum. Einnig er hann farinn að sýna slúðurblöðum móður sinnar talsverðan áhuga.

Já og klappið kom í þessum mánuði. Núna er flestum gestum vinkað bless og svo er klappað fyrir því að þau séu að fara.

Fjarstýringar eru ennþá æðri öllum leikföngum og á hann núna sjálfur tvær sem eru sennilegast óstarfhæfar sökum þess að þær eru fullar af slefi.

Tennurnar eru orðnar sjö talsins og grunar okkur hjónunum að það séu fleiri á leiðinni sökum óhæfilega mikils slefs.



Að lesa slúðurtímaritStandandi stolturStolturFyndinn pabbiPabbi að kilta og mamma að rannsaka tærnarYfir sig spenntur.Flottur í nýju skónum.

Comments No Comments »



Útí glugga, originally uploaded by Ívar Örn

Eiður orðinn 10 mánaða gamall og styttist óðum í að hann byrji í aðlögun í leikskólanum. Hér í laufbrekkunni gengur allt út á að skerma af og forða því dóti sem okkur er annt um því ef ekki er vel að gáð kemur litli Boot CAmparinn okkar skríðandi Army Style og tætir allt í sig. Að standa úti í glugga er líka mjög gaman þósvo að hann sé hvorki fær um að koma sér sjálfur í eða úr þeirri stöðu sjálfur. Tennurnar eru óspart notaðar á tær móður hans þegar hann vantar eitthvað og einnig eru snúrur nagarðar óspart ef hann kemst í slíkar.

Eiður er orðinn 74cm og 8.7kg og dafnar vel. Alltaf bætist í orðaforðann og nýjustu orðin eru Strætó, Skamm, Dudda, Krakkar og Heitt. Eiður er líka búinn að læra að klappa þósvo að það sé gert mjög varlega til hitta höndunum nú örugglega saman og klapp er ekki svona eitthvað hann gerir fyrir hvern sem er og hvenær sem er … en hann kann það samt.

Við feðgarnir erum ennþá í buslinu en 3ja námskeiðið er bara einu sinni í viku. Aðaláhugamálið þessa dagana eru bækur og rútínan á skiptiborðinu er sú að fyrst er hann lagður niður, næst fær hann bók og þá fyrst er hægt að byrja að skipta um bleijuna.

Svefnrútínan er reyndar öll í klessu akkurat núna því Eiður er nýskriðinn upp úr flensunni en áætlaður fjöldi daga til að koma reglu aftur á í þeim geiranum eru 2 dagar af orgi og öskri.

HermannaskriðStrákurinn í speglinum

Frekja #1Frekja #2Frekja #3

Læt flakka með hérna video af drengnum okkar að lesa. Lykiloðið til að aflæsa skránni er nafnið á bróður mínum.

Eiður Styrr að lesa from Ívar Örn Helgason on Vimeo.

Tags: ,

Comments 1 Comment »



Riiisa stór, originally uploaded by Ívar Örn.

Drengurinn okkar orðinn 9 mánaða og tíminn flýgur áfram. Tennurnar á litla kút halda áfram að brjótast niður og glittír í tanngarðinn í hvert skipti sem hann brosir. Hljóð eins og gaga, þetta, ttta, mammmamama, pabababba og þþþþtthhhhhh eru vinsælust þessa dagana og svo er hann farinn að sýna okkur hvað hann er orðinn stór. Og þá eiga allir að klappa þar sem hann er ekki búinn að læra það sjálfur. Annars gengur rútínan bara gríðarlega vel og kúturinn sefur eins og steinn á nóttunni. Já og það er gaman að segja frá því að hann er kominn með pláss á leikskóla og byrjar í aðlögun 6.apríl.

Brosandi út að eyrumEiðurEiður og pabbi hans

Comments 1 Comment »