Jólin voru alveg einstaklega yndisleg í ár. En núna er þetta bara spurning um nokkra daga þangað til að við verðum í stanslausum eltingarleik. Eiður er farinn að standa við lágar mublur í íbúðinni og svo er hann farinn að geta reddað sér frekar vel á gólfinu eins og meðfylgjandi “TimeLapse” myndskeið sýnir. Svo verður gaman að sjá litla drenginn á gamlárskvöld, hvernig hann höndlar blysin og stjörnuljósin.
Archive for the “Family Posts” Category8 mánuðir komnir og styttist óðum í eins árs afmælið. Eiður er farinn að framleiða tennur. 4 stykki komin og ein sjáanlega á leiðinni. Sundið gengur vel og ef þetta heldur svona áfram geri ég ráð fyrir því að hann verði farinn að synda 100 metra skriðsund á innan við 4 mínútum eftir nokkra mánuði. Eiður er ekkert að flýta sér að byrja að skríða þannig að tækin mín og myndavélarnar eru ennþá í öruggu skjóli, en drengurinn sýnir tölvum og fjarstýringum meiri og meiri áhuga eftir því sem dagarnir líða. Það er alltaf að bætast við rútínuna sem var nú ekkert svakalega flókin áður en hann fór í háttinn ( D - Vítamín ) en núna erum við farnir að bursta tennurnar sem honum finnst einstaklega skemmtilegt ( kanski þar sem fyrir honum er þetta bara vera meira gómnudd en tannburstun ). Eiður gisti í fyrsta skipti hjá Ömmu Rögnu og Bjössa afa í gær og það var greinilegt að hann fékk fyrsta flokks þjónustu þar á bæ þar sem hann sýndi foreldrum sínum ekkert svo mikinn áhuga þegar við komum að sækja hann daginn eftir. Tags: Family Posts
Vá… núna er ég farinn að átta mig á þessu bulli í foreldrum mínum talandi um hvað tíminn líður hratt.
Hálft ár er nú liðið síðan Eiður fæddist. Eiður er farinn að éta nánast allt á matseðlinum og gulrætur eru ekki lengur framleiddar af sjálfum Satan. Við vorum að hækka okkur upp í 3 1/2 í bleyjustærð og megnið af samfellunum og náttgöllunum eru komin upp á loft. Við Eiður erum ennþá í köfunartímunum og skemmtum okkur konunglega þar. Fyrir nokkru skelltum við okkur út með drenginn á snjóþotu, en sökum þess að hann hefur aldrei gert slíkt áður þá var hann bara með template “hissa” svipinn uppi allan tímann, en hey.. hann er líka þannig þegar hann fær að fara með í Bónus. Læt fylgja með nokkrar myndir. |
















Entries (RSS)