Archive for the “Uncategorized” Category




Mamma og Eiður, originally uploaded by Ívar Örn.

Megnið af 16. mánuðinum hjá Eiði fór í sumarfrí. Við skelltum okkur í Þjórsárdal þar sem við gistum á tjaldstæðinu Selfit. Svo fórum við í sund í Þjórsárlaug og skoðuðum Þjóðveldisbæinn Stöng. Við feðgarnir fórum í svakalega skemmtilegan 7km göngutúr í kringum tjaldstæðið sem reyndar endaði með því að kúturinn öskraði og sparkaði í mig þar sem ég labbaði ekki nógu hratt til baka. Eftir Þjórsárdalinn héldum við í Landmannalaugar þar sem rigndi eldi og brennisteini allann tímann. Sem betur fer vorum við í tjaldvagni þannig að það fór bara frekar vel um okkur.



Úti í náttúrunni, originally uploaded by Ívar Örn.

Eiður verður öruggari með sig með hverjum deginum sem líður og hættir sér alltaf lengra og lengra frá okkur í skoðunartúrunum sínum.



Gengið frá, originally uploaded by Ívar Örn.

Ferðalagið var síðan endað við Seljarlandsfoss þar sem við gistum eina nótt og héldum heim á leið daginn eftir rétt eftir að Eiður var búinn að pakka dótinu saman.

Svona almennt séð dafnar hann vel og skemmtir sér konunglega á leikskólanum. Hann varla tekur sér tíma í að kveðja okkur foreldrana þegar það er farið með hann á morgnana, en tekur alltaf á móti okkur með brosi og risa knúsi þegar hann er sóttur. Í tannafréttum er það helst að engin tönn kom í þessum mánuðinum.



Frekja?, originally uploaded by Ívar Örn.

Ákveðinn er hann eins og mamma sín og fær sínu frammgengt. Á leikskólanum lærði hann þetta trikk til að leggja áherslu á hlutina.

Veikindasagan hélt áfram og þurfti hann að kíkja í heimsókn til heimilislæknisins 2svar sinnum í viku í 1/2 mánuð til að hreinsa úr eyrunum og svo fékk hann dropa með því. En nú er hann kominn yfir mesta ruglið og er miklu hressari.

Im not listening to this!Sumir hlutir eiga bara sinn staðIkeaEiður  og Pabbi í tjaldvagninumÁ leiðinni í sund í Þjórsárdal

Comments No Comments »

Hvað má bjóða þér ?
Hvað má bjóða þér ?, originally uploaded by Ívar Örn.

Ég held að það sem standi mest upp úr í þessum mánuði er labbið hjá litla kútnum okkar. Núna er hann farinn að standa upp óstuddur, beygja sig niður til að taka hluti upp og hlaupa um.

Babblið heldur áfram eins og flest annað og er talað nánast út í eitt frá því hann vaknar. Mest þó þegar hann er nývaknaður eða þegar maður sækir hann á leiksskólann. Orðin sem eru algengust þessa dagana er kisa, datt, mammmammammmmm og dýrahljóðin eru jaaaaaa( mjá ), ííjaaaaa( þegar hann sér fugla ), aaafi, þetta og svo fékk ég hann til að segja muuu um daginn.

Drekka sjálfur ?
Að drekka sjálfur, originally uploaded by Ívar Örn.

Eiður er aðeins byrjaður að prófa sig áfram með að drekka sjálfur úr glasi, en eins og er virðist vera mest spennandi að hella öllu yfir sig og á gólfið. Gengur samt best ef pabbi eða mamma hjálpa til.

Tæki, tæki og aftur tæki. Sonur minn sér fátt annað. Uppáhalds leikfangið hjá afa og ömmu í Birkigrund er til dæmis lítill piparkökulall, nema að hann væri varla spenndandi nema það væri takki á honum sem fær hann til að segja eitthvað hljóð. Mest spennandi leikfangið hér heima er síðan BOSCH led vasaljós sem fylgdi með borvélinni minni.

Um daginn fórum við fjölskyldan í Nautólfsvíkina og var meðal annars farið í rennibraut sem var þarna og leikið í lítilli búð sem var á ströndinni.

Það er mjög hentugt að eiga barn eins og Eið á krepputímum. Ég fór til dæmis með hann í bakaríið um daginn að versla í morgunmatinn. Eiður starði í augun á afgreiðslukonunni, brosti svo út að eyrum og heillaði hana gjörsamlega upp úr skónum. Endaði með því að hún sótti risa kleinu, setti í poka og gaf honum. Ég þurfti hins vegar að borga fyrir allt mitt.

Mest fyndið er samt þegar hann ákveður að það sé kominn tími á að snýta sér. Þá hleypur hann inn á klósett, rífur svona 4 metra af klósettrúllu og snýtir sér duglega í pappírshrúguna.

Eiður snýtir sér from Ívar Örn Helgason on Vimeo.

Skríða og sletta mjólk út um alltRjómi... mmmmUppáhalds þessa daganaÍ fyrsta skipti á trambolíni.Með mömmu á ströndinni í NautólfsvíkBáðir í fánapeysumÍ stíl
Tags: , , , ,

Comments 1 Comment »



Eiður að lesa, originally uploaded by Ívar ÖrnKúrturinn orðinn 5 mánaða.

Eiður er byrjaður á framhaldsnámskeiði í ungbarnasundi og ganga tímarnir einna helst út á að kafa og busla. Annað gríðarlega spennandi sem byrjaði í þessum mánuði er maturinn…Ójá.. avocado, sætar kartöflur og bananar eru í uppáhaldi, en gulrætur, rófur og blómkál er svona það ógeðslegasta sem hann hefur smakkað. Við erum líka búin að kaupa svona klósettsetu addon og er hann búinn að prófa að sk**a beint í klósettið. Skemmtilegir tímar framundan.

Pabbi með suðið mittÞað er gott að kúra hjá ömmu

Comments 1 Comment »

Hellúúú

4ra mánaða, originally uploaded by Ívar Örn.

Betra seint en aldrei….Síðasti séns að pósta 4ra mánaða myndinni. Eiður er núna byrjaður í ungbarnasundi 2svar í viku og kafaði einmitt í fyrsta skipti í síðustu viku. Svo förum við feðgarnir einu sinni í viku í ungbarnanudd þar sem hann tekur hressilega á öxlunum á pabba sínum :) Þegar heim er komið er stanslaust babbl, slef og blaður. Gaman gaman gaman :) Fleiri myndir líka komnar inn á myndavefinn.

Comments No Comments »



4ra vikna, originally uploaded by Ívar Örn.

Jæja… núna er Eiður orðinn 3ra mánaða. Hann er orðinn 62cm og tæp 6 kíló. Eiður notar hvert tækifæri sem gefst til að reka við, slefa yfir allt og éta smekkinn sinn. Við hjónin erum að springa úr stolti og hvað þá þegar hann rekur upp úr sér bull orðin grrrrgubbbb og gugugugugu. Fyrsta orðið hans var NEI og svo vill Klara meina að hann sé farinn að segja Mamma… en ég held að það sé tóm vitleysa í henni. Ég var að henda inn nokkrum myndum á myndasvæðið hans fyrir þá sem hafa verið að kvarta..

Comments 1 Comment »



4ra vikna, originally uploaded by Ívar Örn.

Eiður bara orðinn 2ja mánaða ( og 5 daga ) gamall! Ég fór með hann í 9 vikna skoðun í síðustu viku. Eiður brosti bara og spjallaði við ljósuna allan tímann. Annars er mikið að gerast hjá litla kútnum þessa dagana. Bros, hjal og hlátur sem bræða mann í hvert skiptið á fætur öðru. Á sunnudaginn fór hann í fyrsta skipti með okkur í sveitina til Kjartans afa og Hrefnu ömmu og svo fórum við helgina þar á undan með hann í sveitina til Helga afa og Kristínar fræknu. Hann hefur ekki stoppað í því að segja okkur frá öllu sem hann sá í sveitinni :)

Comments 4 Comments »