Ég held að það sem standi mest upp úr í þessum mánuði er labbið hjá litla kútnum okkar. Núna er hann farinn að standa upp óstuddur, beygja sig niður til að taka hluti upp og hlaupa um.
Babblið heldur áfram eins og flest annað og er talað nánast út í eitt frá því hann vaknar. Mest þó þegar hann er nývaknaður eða þegar maður sækir hann á leiksskólann. Orðin sem eru algengust þessa dagana er kisa, datt, mammmammammmmm og dýrahljóðin eru jaaaaaa( mjá ), ííjaaaaa( þegar hann sér fugla ), aaafi, þetta og svo fékk ég hann til að segja muuu um daginn.
Eiður er aðeins byrjaður að prófa sig áfram með að drekka sjálfur úr glasi, en eins og er virðist vera mest spennandi að hella öllu yfir sig og á gólfið. Gengur samt best ef pabbi eða mamma hjálpa til.
Tæki, tæki og aftur tæki. Sonur minn sér fátt annað. Uppáhalds leikfangið hjá afa og ömmu í Birkigrund er til dæmis lítill piparkökulall, nema að hann væri varla spenndandi nema það væri takki á honum sem fær hann til að segja eitthvað hljóð. Mest spennandi leikfangið hér heima er síðan BOSCH led vasaljós sem fylgdi með borvélinni minni.
Um daginn fórum við fjölskyldan í Nautólfsvíkina og var meðal annars farið í rennibraut sem var þarna og leikið í lítilli búð sem var á ströndinni.
Það er mjög hentugt að eiga barn eins og Eið á krepputímum. Ég fór til dæmis með hann í bakaríið um daginn að versla í morgunmatinn. Eiður starði í augun á afgreiðslukonunni, brosti svo út að eyrum og heillaði hana gjörsamlega upp úr skónum. Endaði með því að hún sótti risa kleinu, setti í poka og gaf honum. Ég þurfti hins vegar að borga fyrir allt mitt.
Mest fyndið er samt þegar hann ákveður að það sé kominn tími á að snýta sér. Þá hleypur hann inn á klósett, rífur svona 4 metra af klósettrúllu og snýtir sér duglega í pappírshrúguna.
Stór mánuður að baki. Eiður er núna byrjaður á leikskóla. Aðlögunin gekk svona líka vel. Það var búið að undirbúa okkur undir að hann yrði örugglega ekkert mjög sáttur við að verða skilinn eftir, en þegar að því kom var honum bara alveg sama. Allar fósturnar eru skemmtilegar og hann vill vera hjá þeim öllum. Fyrsta daginn í aðlögun skellti hann sér meiraðsegja í vettvangskönnun um leikskólann, kíkti á pottana í eldhúsinu og fór svo inn í eitt leikherbergið þar sem hann lék sér við nokkra krakka. Pestirnar koma núna í röðum og er Eiður búinn að taka út hita, kvef, eyrnabólgu, barkabólgu, missa röddina svo eitthvað sé nefnt og aðeins 2 vikur að baki á leikskólanum.
Göngutúrarnir verða alltaf lengri og lengri og er hann farinn að labba óstuddur á milli sófa og svo til okkar annað slagið ásamt því að geta núna staðið upp og sest niður með miklu meira öryggi en áður. Einnig er hann farinn að príla upp á sófana, sófaskemlana og upp í rúmið okkar sem kallaði á breytingar í því hvar hlutir eru geymdir.
Prakkaraskapurinn virðist aukast núna með hverjum deginum. Mest skemmtilegt er að dreifa dótinu út um allt og taka borðstofustólana og skella þeim í gólfið með tilheyrandi látum og athygli frá foreldrunum. Við varla höfum undan við að taka til eftir skrípið.
Smá saman bætist við orðaforðann en helsta breytingin þar á er að hann virðist vera farinn að svara með já og nei ef maður spyr hann út í einfalda hluti eins og “viltu rúsínu?”. Sú spurning skilar í 95% tilfella “jaaaaa”, en í 5% tilfellum hristir hann hausinn og segir “neeeei” þósvo að hann vilji auðvitað rúsínuna.
Eiður orðinn 10 mánaða gamall og styttist óðum í að hann byrji í aðlögun í leikskólanum. Hér í laufbrekkunni gengur allt út á að skerma af og forða því dóti sem okkur er annt um því ef ekki er vel að gáð kemur litli Boot CAmparinn okkar skríðandi Army Style og tætir allt í sig. Að standa úti í glugga er líka mjög gaman þósvo að hann sé hvorki fær um að koma sér sjálfur í eða úr þeirri stöðu sjálfur. Tennurnar eru óspart notaðar á tær móður hans þegar hann vantar eitthvað og einnig eru snúrur nagarðar óspart ef hann kemst í slíkar.
Eiður er orðinn 74cm og 8.7kg og dafnar vel. Alltaf bætist í orðaforðann og nýjustu orðin eru Strætó, Skamm, Dudda, Krakkar og Heitt. Eiður er líka búinn að læra að klappa þósvo að það sé gert mjög varlega til hitta höndunum nú örugglega saman og klapp er ekki svona eitthvað hann gerir fyrir hvern sem er og hvenær sem er … en hann kann það samt.
Við feðgarnir erum ennþá í buslinu en 3ja námskeiðið er bara einu sinni í viku. Aðaláhugamálið þessa dagana eru bækur og rútínan á skiptiborðinu er sú að fyrst er hann lagður niður, næst fær hann bók og þá fyrst er hægt að byrja að skipta um bleijuna.
Svefnrútínan er reyndar öll í klessu akkurat núna því Eiður er nýskriðinn upp úr flensunni en áætlaður fjöldi daga til að koma reglu aftur á í þeim geiranum eru 2 dagar af orgi og öskri.
Læt flakka með hérna video af drengnum okkar að lesa. Lykiloðið til að aflæsa skránni er nafnið á bróður mínum.
8 mánuðir komnir og styttist óðum í eins árs afmælið. Eiður er farinn að framleiða tennur. 4 stykki komin og ein sjáanlega á leiðinni. Sundið gengur vel og ef þetta heldur svona áfram geri ég ráð fyrir því að hann verði farinn að synda 100 metra skriðsund á innan við 4 mínútum eftir nokkra mánuði. Eiður er ekkert að flýta sér að byrja að skríða þannig að tækin mín og myndavélarnar eru ennþá í öruggu skjóli, en drengurinn sýnir tölvum og fjarstýringum meiri og meiri áhuga eftir því sem dagarnir líða. Það er alltaf að bætast við rútínuna sem var nú ekkert svakalega flókin áður en hann fór í háttinn ( D - Vítamín ) en núna erum við farnir að bursta tennurnar sem honum finnst einstaklega skemmtilegt ( kanski þar sem fyrir honum er þetta bara vera meira gómnudd en tannburstun ).
Eiður gisti í fyrsta skipti hjá Ömmu Rögnu og Bjössa afa í gær og það var greinilegt að hann fékk fyrsta flokks þjónustu þar á bæ þar sem hann sýndi foreldrum sínum ekkert svo mikinn áhuga þegar við komum að sækja hann daginn eftir.